Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16741
Jón Árnason gaf fyrst út ævintýri sín í tveimur bindum á árunum 1862–1864 og voru þau endurútgefin á árunum 1954–1961. Mörg þessara ævintýra hafa verið endurútgefin síðan, ýmist stök eða í samfloti við aðrar sögur, og leikur mér forvitni á að vita hvernig útgefendur fara með textana. Birtast þeir orðréttir eftir útgáfu Jóns eða er þeim breytt að einhverju ráði? –Og í hvaða tilgangi breyta menn textanum? Einnig er áhugavert að skoða hvort myndskreytingar fylgja með endurútgáfum, en þær voru engar í útgáfum Jóns. Skoðaðar verða kenningar fræðimanna um hlutverk og uppbyggingu ævintýra og þær bornar saman við nokkur endurútgefin íslensk ævintýri í þeim tilgangi að athuga hvort hinn upphaflegi texti hafi í einhverjum tilvikum hlotið skaða af nýrri útgáfuaðferð. Í hraða nútímasamfélagsins á ævintýrið á bók undir högg að sækja sökum þeirra afþreyingarmöguleika sem fyrir hendi eru. Skoðað verður hver staða ævintýra úr fórum Jóns er í dag.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Margrét Lilja Björnsdóttir-ritgerð.pdf | 1.04 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |