Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16851
Í þessari ritgerð verður leitast við að svara því hver aðkoma ríkisins að efnahagsmálum á Suðurnesjum í kjölfar brottfarar varnarliðsins árið 2006 og efnahagshrunsins árið 2008 var. Einnig er fjallað um efnahags- og atvinnumál Suðurnesja í víðu samhengi.
Hið opinbera getur gripið til ýmissa aðgerða til að bregðast við efnahagsáföllum. Aukning ríkisútgjalda í formi fjárfestinga getur til dæmis komið hagkerfum sem eiga í erfiðleikum að gagni.
Helstu niðurstöður eru þær að aðkoma ríkisins var almenns eðlis og í takt við almenna stefnu stjórnvalda hvað varðar uppbyggingu innviða víðsvegar um land.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaritgerð - Ingi Eggert Ásbjarnarson_.pdf | 1.38 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |