is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16882

Titill: 
  • Kynjafræði í skólum : eðli og afdrif tillagna í lokaskýrslu þróunarverkefnisins Jafnréttisfræðsla í leik- og grunnskólum
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Ýmis þróunarverkefni sem beinast að kynja- og jafnréttisfræðslu hafa verið sett á laggirnar í gegnum árin. Hér er sjónum beint að þróunarverkefninu Jafnréttisfræðsla í leik- og grunnskólum sem unnið var í fimm sveitarfélögum skólaárið 2008–2009 á vegum félags- og tryggingamálaráðuneytisins, Jafnréttisstofu, Akureyrarbæjar, Kópavogs-bæjar, Mosfellsbæjar, Hafnarfjarðarkaupstaðar og Reykjavíkurborgar. Í lokaskýrslu verkefnisins birtust níu tillögur um áframhaldandi jafnréttisstarf og er markmið rannsóknarinnar að fjalla um þróunarverkefnið og skoða hvernig unnið hafi verið með tillögurnar. Þær taka til ýmissa þátta og voru rannsóknaraðferðir því margvíslegar. Skýrslur, námsskrár og jafnréttisáætlanir voru skoðaðar, tölvupóstar voru sendir og tekin voru síma- og vettvangsviðtöl. Þátttakendur voru meðal annars aðilar úr þátttökuskólum þróunarverkefnisins, yfirmenn kennaradeilda, jafnréttisráðgjafar og aðrir sérfræðingar. Niðurstöður benda til þess að verkefnið hafi haft jákvæð áhrif á þátttakendur þess, þrátt fyrir að það félli ekki alltaf að kröfum skólaþróunarfræða. Rannsóknin sýnir einnig fram á að unnið hafi verið með sumar tillögurnar en aðrar ekki, auk þess sem vænlegt yrði að útvíkka nokkrar þeirra þannig að þær tækju til breiðara sviðs. Ástæða þess að ekki hefur verið unnið með sumar tillögur eru meðal annars fjárskortur, ófullnægjandi umsjón um jafnréttismál almennt og þekkingarleysi um kynjafræði og skólastarf. Einnig gætu sumar tillögur talist mikilvægari en aðrar í jafnréttisstarfi skóla. Jafnvel þó að ekki hafi verið unnið með allar tillögurnar nýtast þær vel til hliðsjónar við innleiðingu grunnþáttarins jafnrétti sem ný aðalnámskrá frá árinu 2011 gerir ráð fyrir.

  • Útdráttur er á ensku

    Gender and equality in schools. Nature and results of recommendations in a final report of a development project
    A number of development projects that focus on gender and equality have been established over the years. Here the focus is on a development project that took place in five counties in Iceland over the years 2008–2009. Nine recommendations appeared in the final report of the project which aimed to continue with ongoing gender equality in schools. The recommendations were given in various formats and numerous research methods were used, such as reviewing reports, curriculum, and equality-programs, sending e-mails, and taking telephone and field interviews. Results showed that work has been done with some of the recommendations, while nothing has happened with others. This can be attributed to lack of funding, lack of knowledge and inadequate manage maintenance of equality rights affairs. In addition, some of the recommendations are considered more important than others in gender school activities. Even though some of the recommendations have not been treated they might be a good leader in implementing the equality factor which the new main-curriculum expects.

Samþykkt: 
  • 19.11.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/16882


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
SandraRutSkúladóttir.pdf1.2 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna