Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16885
Í þessari ritgerð mun höfundur leitast við að kanna og greina hver réttindi fatlaðra eru á vinnumarkaði, hvernig réttindin eru vernduð í íslenskum rétti samkvæmt stjórnarskránni og öðrum lögum er málefnið varðar og jafnframt í alþjóðasamningum
sem Ísland er aðili að. Þá mun höfundur leitast við að skýra fötlunarhugtakið eins og það er túlkað í íslenskum rétti, alþjóðasamningum og Evrópurétti svo betri sýn fáist á
efnið. Evrópurétturinn mun fá nokkuð ítarlega umfjöllun þar sem tilskipun ráðsins nr. 2000/78/EB er veigamikil og mikil réttarbót fyrir minnihlutahópa líkt og fatlaða.
Tilskipunin hefur ekki verið innleidd í íslenskan rétt og verða því dregnar ályktanir um hvort hagsmunum tilgreindra minnihlutahópa, er tilskipunin verndar, yrði betur
borgið ef tilskipunin yrði innleidd. Litið verður til íslenskrar dómaframkvæmdar og
jafnframt verða skoðaðir dómar Evrópudómstólsins og mannréttindadómstóls Evrópu, er varða efnið. Gerð verður grein fyrir þeim alþjóðasamningum er vernda réttindi fatlaðra á vinnumarkaði og ályktun dregin í lok ritgerðar um hvort verndin sé nægjanleg og hvaða ráðstafanir gætu mögulega aukið réttarverndina og með hvaða hætti.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
ML-ritgerð-Alma-Ýr-Ingólfsdóttir.pdf | 806.54 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |