Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16912
Tónlist er stór hluti af daglegu lífi margra og hefur verið notuð formlega og óformlega í meðferðarskyni í gegnum tíðina. Ritgerðin fjallar um mikilvægi og áhrif tónlistar á manninn, ásamt því að fjalla fræðilega um áhrif tónlistarmeðferðar sem úrræði við ýmsum sjúkdómum. Ritgerðin er skrifuð með því markmiði að komast að því hvort að tónlist geti á einn eða annan hátt bætt félagsfærni einstaklinga og aukið sjálfsálit þeirra. Niðurstöður leiddu í ljós að hlutverk tónlistar eru margvísleg og tónlistarmeðferð getur verið skilvirkt verkfæri til þess að bæta félagsfærni fólks á öllum aldri.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Mikilvægi tónlistar - Davíð Már.pdf | 465.92 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |