Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1691
Tilgangur þessarar rannsóknar var sá að varpa ljósi á þætti sem Luv ehf. þarf að lagfæra og betrumbæta til að bæta markaðsstöðu sína og fyrirbyggja aðrar markaðsógnir.
Luv ehf. er ungt fyrirtæki sem stofnað var árið 2006 í kjölfari þátttöku eigenda í keppninni Ungir vísindamenn. Vara Luv ehf. er Nuddgallinn sem er samfella með myndum sem sýna strokur ungbarnanudds og er ætlað börnum frá 0-18 mánaða.
Framkvæmd var rannsókn og voru mæður sem sóttu mömmumorgna í Garðabæ og á Akueyri fengnar til að svara nokkrum spurningum. Rannsóknin var unnin í apríl, var notast við megindlega rannsóknaraðferð og lokaðar spurningar.
Helstu niðurstöður markaðsrannsóknarinnar leiddu í ljós að einungis 58% vissu að enn í dag væri verið að selja Nuddgallann og af þeim sem vissu af honum voru um 32% sem vissu hvar hann fengist. Fæstar gerður sér grein fyrir því að heimasíða Luv ehf. tengdist Nuddgallanum.
Litlum fjármunum hefur verið varið í kynningarstarf Luv ehf., en reynt hefur verið að komast í sem ódýrustu eða jafnvel fríar auglýsingar. Bæta þarf því kynningarstarf Luv ehf. en það er hægt að gera það til dæmis með fréttatilkynningum, umfjöllum á spjallþráðum Barnalands og Barnanets og með auglýsingum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Markaðs- og kynningaráætlun-Luv ehf - efnisyfirlit.pdf | 77.26 kB | Opinn | Efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
Markaðs- og kynningaráætlun-Luv ehf - heild.pdf | 431.62 kB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna | |
Markaðs- og kynningaráætlun-Luv ehf - heimildaskrá.pdf | 85.08 kB | Opinn | Heimildaskrá | Skoða/Opna | |
Markaðs- og kynningaráætlun-Luv ehf - útdráttur.pdf | 205.29 kB | Opinn | Útdráttur | Skoða/Opna |