Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16929
Meginviðfangsefni þessarar ritgerðar var að gera grein fyrir eðli og umfangi líkamlegs ofbeldis gagnvart börnum af hendi foreldra og ofbeldis sem börn verða vitni að milli foreldra. Gerð var innihaldsgreining á helmingi allra tilkynninga sem bárust Barnavernd Reykjavíkur árið 2012 sem fólu í sér líkamlegt ofbeldi gagnvart börnum af völdum foreldra annars vegar og ofbeldi sem börn urðu vitni að milli foreldra hins vegar. Helstu niðurstöður eru þær að börn eru í meiri hættu á að verða vitni að ofbeldi milli foreldra eftir því sem þau eru yngri. Gerendur í makaofbeldi voru í langflestum tilfellum karlkyns og í þriðjungi tilfella var gerandi af erlendum uppruna. Barnaverndaryfirvöld tilkynntu aldrei mál til lögreglu sem fólu í sér að barn hefði orðið vitni að ofbeldi milli foreldra.
Fleiri tilkynningar bárust um líkamlegt ofbeldi gagnvart drengjum en stúlkum. Algengast var að tilkynningar fælu í sér að yngri börn væru beitt líkamlegu ofbeldi og voru börn af erlendum uppruna í mun meiri hættu á að vera beitt líkamlegu ofbeldi sem og börn með fötlun. Í flestum tilfellum var gerandinn kynfaðir barns og í tæplega helmingi tilfella var gerandinn af erlendum uppruna. Barnaverndaryfirvöld óskuðu eftir lögreglurannsókn í aðeins 14% tilfella, þegar tilkynningar fólu í sér líkamlegt ofbeldi gagnvart barni.
Lykilorð: Barnaverndartilkynningar, líkamlegt ofbeldi, börn sem verða vitni að ofbeldi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Þora_Arnadottir-Alveg loka.pdf | 1.34 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |