is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1697

Titill: 
  • iRobot Roomba
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Mikilvægt er að fyrirtæki móti stefnu og áætlun um hvernig þau hyggist sinna markaðsstarfi sínu til þess að samhæfa aðgerðir þess. Lykilatriði er að þekkja samkeppnisumhverfi fyrirtækisins, þarfir markhópsins og vera vakandi fyrir tækifærum sem bjóðast. Athyglisvert var að skoða þetta ört vaxandi fyrirtæki. Vilji eiganda iRobot ehf. til að ná árangri og þjónusta viðskiptavini sína skín í gegn og er einlægur. Í verkefninu er markaðurinn greindur, settur saman rýnihópur og rætt við söluaðila. Á grundvelli greiningar og rannsóknar eru markmið fyrirtækisins skilgreind og sett fram markaðsstefna. Lögð er fram kynningaráætlun til eins árs. Þar er áhersla lögð á upplýsandi þætti í auglýsingum, sjálfvirknina, hagkvæmnin af notkun ryksugunnar og tímasparnaðinum. Einnig er aðeins komið inn á tilfinningalega þáttinn í auglýsingum en það skal notað hæfilega á meðan vörumerkið er að festa sig betur í sessi sem gæðavara. Sérstaða iRobot Roomba er gervigreindin og sjálfvirknin. Til að ná árangursríkri staðfærslu er grundvallaratriði að hafa skýra stefnumótun, leggja áherslu á hvað það er sem aðgreinir okkur frá samkeppnisaðilanum og hvernig við ætlum að koma þessari aðgreiningu til skila. Ryksugan er hönnuð til að framkvæma þrifin sjálf og eykur þægindi þeirra sem nota hana og sparar tíma en það er mikilvægt gildi í huga viðskiptavina. Persónuleg sölumennska og orðspor manna á milli er mjög mikilvægt, því er mikilvægt að leggja áherslu á upplýsingagjöf og þjónustu á öllum stigum kaupákvörðunarferilsins. Þar liggur styrkleiki fyrirtækisins. En hann er áhugi eiganda iRobot ehf. á hönnun og eiginleikum vélarinnar, þjónustulund og reynsla hans af afgreiðslustörfum og þekking hans á raftækjum.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað til júlí 2013
Samþykkt: 
  • 16.7.2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1697


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
irobot_utdrattur.pdf46.91 kBOpinniRobot_utdrátturPDFSkoða/Opna
irobot_efnisyfirlit.pdf59.3 kBOpinniRobot Roomba - EfnisyfirlitPDFSkoða/Opna
irobot_heimildarskrá.pdf129.66 kBLokaðuriRobot_heimildarskraPDF
lokaskjal_irobot.pdf1.85 MBOpinniRobot Roomba_heildPDFSkoða/Opna
irobot_viðaukar.pdf586.51 kBLokaðuriRobot Roomba-viðaukarPDF