is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/17010

Titill: 
  • „Þá er hrópað hátt um líf og synd og glæp.“ Um rauðsokkur, frjálsar fóstureyðingar og andstöðu
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Rannsókn þessi er unnin eftir aðferðum kynjasagnfræði, þar sem kenningum kynjafræði er fléttað saman við sagnfræðilega rannsóknarvinnu. Í rannsókninni er fjallað um baráttu rauðsokka fyrir frjálsum fóstureyðingum á tímabilinu 1970-1975. Rauðsokkur áttu stóran þátt í að koma endurskoðun fóstureyðingalaganna í umræðuna. Þær lögðu ríka áherslu á að í nýjum fóstureyðingalögum skyldu fóstureyðingar gerðar frjálsar og þær lögðu áherslu á aðkomu kvenna að gerð nýrra laga. Rauðsokkur settu baráttuna fyrir frjálsum fóstureyðingum í samhengi við réttindabaráttu kvenna á öðrum sviðum; sjálfsákvörðunarrétturinn var nauðsynlegur fyrir fullt kvenfrelsi.
    Þá fjallar rannsóknin um þá andstöðu sem rauðsokkur og málstaður þeirra mætti í fóstureyðingamálinu. Umræða í fjölmiðlum og á Alþingi var greind og komu þá í ljós þrástef í orðræðunni. Í umræðu í fjölmiðlum var rauðsokkum stillt upp í andstöðu við ríkjandi hugmyndir um kvenleika; þær hugsuðu um eigin hagsmuni, vildu ekki hugsa um börnin sín og vildu jafnvel drepa börnin sín. Þær voru sagðar valda upplausn í samfélaginu, vera lauslátar og siðspilltar. Í umræðu sérfræðinga og leikmanna á Alþingi og í fjölmiðlum mátti greina hugmyndir um vanhæfni kvenna til að taka ákvarðanir um fóstureyðingar og að frjálsar fóstureyðingar myndu ýta undir lauslæti.

  • Útdráttur er á ensku

    The study is in the tradition of gender history, where the theories of gender studies are interwoven with historical research. The study analyzes the Icelandic Red Stockings‘ 1970-1975 campaign for free abortion. The Red Stockings played an integral role in opening the discussion about revising the abortion laws in Iceland. They placed great emphasis on having the new abortion law make abortion free and that women should play a role in writing the laws. The Red Stockings put the campaign for free abortion in the context of women‘s rights in other areas; women‘s right of self determination was an essential part of women‘s liberation.
    The study furthermore addressese the resistance the Red Stockings and their cause met in the case of the abortion laws. Media and parliamentary debates were analyzed and discursive themes unveiled. In the media, the Red Stockings were juxtaposed with dominant ideas about femininity; they were said to be self-centered, unwilling to care for their children, and even said to want to kill their children. They were said to cause disruption in society, to be promiscuous and depraved. Analysis of the media and political discourse by specialists and generalists revealed ideas about women‘s incompetence in making decisions about abortions, and that free abortion would promote promiscuity.

Samþykkt: 
  • 7.1.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/17010


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Gunnhildur Sigurhansdóttir_MA.pdf1.03 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna