Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/17027
Í þessari ritgerð er íslensk tónlistarmenning á tímabilinu 1900-1930 tekin til skoðunar. Litið er til þess hvað einkenndi þetta tímabil í íslenskri tónlistarmenningu og hvað bar hæst í íslensku tónlistarlífi almennt. Miklar breytingar urðu í íslensku samfélagi á þessum tíma og endurspeglast það í tónlistarmenningunni. Ritgerðin skiptist í sex kafla. Í fyrsta kafla er fjallað um rannsóknarsögu og aðferðafræðilega nálgun. Í köflum tvö til fjögur er fjallað um íslenska tónlistarmenningu í sögulegu samhengi. Sjötti kaflinn fjallar síðan um hið eiginlega rannóknarefni, íslenska tónlistarmenningu á tímabilinu 1900-1930. Þá er að lokum sagt frá helstu niðurstöðum rannsóknarinnar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Berglind Gestsdóttir.pdf | 480.46 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |