Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/17108
Íslendingar hafa verkað og flutt út saltfisk allt frá því á 18. öld. Frá upphafi hefur Spánn verið meðal allra mikilvægustu markaðssvæða fyrir íslenskan saltfisk. Samdráttur hefur verið í sölunni til Spánar á síðustu árum og áratugum og er skýringanna m.a. að leita í breyttum neysluvenjum og minni kaupmætti neytenda.
- Í þessu meistaraverkefni er gerð þrískipt rannsókn. Í fyrsta lagi er aflað upplýsinga meðal sex útflytjenda á íslenskum saltfiski til Spánar um markaðstefnu og skilgreiningu þeirra á keppinautum. Í öðru lagi er gerð innri vörumerkjarýni þar sem kannað er hvernig sömu útflytjendur hafa beitt verkfærum stefnumiðaðrar vörumerkjastjórnunar. Þriðji og síðasti hlutinn felst síðan í ytri vörumerkjarýni þar sem gerð er könnun meðal neytenda á Spáni, annars vegar um vitund og ímynd íslensks saltfisks og helstu keppinauta hans og hins vegar um atferli þeirra.
- Helstu niðurstöður rannsóknar höfundar eru þær að markaðsstefna útflytjenda á saltfiski til Spánar er mjög óskýr og þeir beita hugmynda- og aðferðafræði stefnumiðaðrar vörumerkjastjórnunar að mjög takmörkuðu leyti. Ytri rýnin bendir m.a. til þess að vitund og ímynd íslensks saltfisks á Spáni sé mismunandi eftir því á hvaða aldri neytendurnir eru og hverjar tekjur þeirra eru.
- Meðal þess sem höfundur leggur til í verkefninu er að stjórnendur vörumerkja íslensks saltfisks velji markhóp sinn í samræmi við niðurstöður ytri rýninnar. Þá er lögð til endurstaðfærsla fyrir íslenskan saltfisk á Spáni þar sem bæði er lögð áhersla á vörutengda og vörumerkistengda þætti. Auk þess er lagt til að stjórnendurnir taki upp hugmynda- og aðferðafræði stefnumiðaðrar vörumerkjastjórnunar.
Vörumerkjastjórnun
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
MS verkefni - Saltfiskur á Spáni - Kristinn A.pdf | 1.11 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |