Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1722
Í þessu verkefni er fjallað um sprotaverkefnið Glæði, sem framleiðir gróðuráburð úr fersku þangi. Markmið verkefnisins var að finna út hvort grundvöllur væri fyrir áframhaldi á framleiðslu og þá með hvaða aðgerðum áburðurinn gæti skilað það miklum tekjum að hann stæði undir einu ársverki.
Rannsóknarspurningar voru:
√ Er fjárhagslegur grundvöllur fyrir Glæði til að dafna og verða að fyrirtæki sem skilar hagnaði ?
√ Með hvaða aðferðum getur Glæðir náð því markmiði sínu að standa undir einu ársverki ?
Í upphafi er saga Glæðis, tilurð og markmið rakin. Gerð var SVÓT greining og tilgreind sérstaða áburðarins. Markaðurinn sem Glæðir vinnur á var greindur og gerð áætlun um markaðsstærð.
Í kostnaðargreiningu var kostnaður við framleiðsluna greindur og fundinn núllpunktur. Tímaáætlun framleiðslunnar og markaðsaðgerða sett fram svo og rekstraráætlun.
Rekstraráætlun sýnir fram á hagnað strax í upphafi og miðað við áætlun um framleiðslu og sölu næstu 10 ára mun Glæðir geta skilað hagnaði sem stendur meðal annars undir víðtækum markaðsaðgerðum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Glæðir-heimildaskrá.pdf | 139.47 kB | Opinn | Heimildaskrá | Skoða/Opna | |
Glæðir-efnisyfirlit.pdf | 162.77 kB | Opinn | Efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
Glæðir-útdráttur.pdf | 74.17 kB | Opinn | Útdráttur | Skoða/Opna | |
Glæðir-viðskiptaáætlun.pdf | 3.11 MB | Opinn | Heild | Skoða/Opna |