Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/17242
Ritgerð þessi fjallar um feril sagnaþularins Inga Hans Jónssonar frá Grundarfirði. Hún byggir á eigindlegum rannsóknum, bæði viðtali við Inga Hans og spurningaskrá sem honum var send. Ritgerðinni er skipt í þrjá meginkafla. Í fyrsta kafla er fjallað um sagnahefð og hlutverk sagnafólks í samfélaginu fyrr og nú. Í öðrum kafla er fjallað um eigindlegar rannsóknaraðferðir, sem þessi ritgerð byggir á. Þriðji og seinasti kaflinn, sem jafnframt er viðamestur, fjallar um feril Inga Hans í misgrófum dráttum frá upphafi til dagsins í dag. Ingi Hans Jónson er 58 ára gamall og sjálfur segir hann að hans ferill í sagnaflutningi hafi byrjað þegar hann var um 10 ára aldur. Því er um að ræða hátt í 50 ára langan feril og er því af ýmsu að taka.
Markmið rannsóknarinnar er fyrst og fremst að skoða sagnamennsku núlifandi sagnamanns/-þular í samhengi við forvera hans og skoða hefðina í kringum hana. Síðustu ár hefur þessi hefð gengið í gegnum markvissa endurreisn á fjölþjóðlegum vettvangi og verður hún tekin til skoðunar, bæði frá sjónarhóli manns sem átti og á beinan þátt í henni sem og frá fræðilegum sjónarhóli.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Góð saga má aldrei gjalda sannleikans - Sagnaþulurinn Ingi Hans Jónsson frá Grundarfirði.pdf | 766.77 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |