is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Listaháskóli Íslands > Listkennsludeild / Department of Arts Education > Lokaritgerðir / Theses (MA, M.Art.Ed.) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/17246

Titill: 
  • Bókverk og hugmyndavinna
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Meistaraverkefnið Bókverk og hugmyndavinna er byggt á verkefni sem ég lagði fyrir nemendur á lokaári í Tækniskólanum í Reykjavík. Verkefnið var hluti af námi þeirra á önninni og fór framkvæmd þess fram í kennslustofu þeirra í Tækniskólanum á Skólavörðuholtinu. Einnig komu nemendur á kynningu á bókverkum í Útúrdúr búð Hverfisgötu 42 og unnu síðan hugmyndavinnu verkefnisins á götum Reykjavíkur á leið sinni milli Útúrdúr og Tækniskólans.
    Ritgerðin skiptist í fjóra hluta. Í fyrsta hluta geri ég bókverkinu sem listformi skil og set það í listasögulegt samhengi. Í öðrum hluta tekst ég á við hugmyndafræðina bak við verkefnið og þá kennslufræði sem hefur áhrif í kennslunni. Í þriðja hlutanum geri ég vettvangi og aðferðafræði verkefnisins skil bæði í máli og myndum og í fjórða kafla reyfa ég niðurstöður mínar frá verkum nemendanna og samvinnu okkar.
    Markmið mitt með þessu verkefni er að leiða nemendur í gegnum verklegt ferli með gerð bókverks. Bókverkið er unnið sem þrívíddar hugkort og virkar framkvæmd þess sem hreyfiafl hugmynda og vangaveltna um spurningu sem nemendur glíma við að svara um gildi menntunar. Með verklegu vinnunni og hugmyndavinnunni leita nemendur annarra kveikja og leiðiþráða en þeirra sem finnast í sígildum heimildum eins og bókum og texta. Þau leita að hugmyndakveikjum úr umhverfinu sínu, oft úr óskilgreindum hlutum og efnivið og þau leita svara innávið hjá sjálfum sér með því að fara persónulega leið sem listræna vinnan framkallar með bókverkinu.
    Niðurstöður úr verkefnum nemendann voru áhugaverðar. Verkin tóku mynd þrívíddar hugkorts eða fjölfelda og var góð breidd í því hvernig nemendur völdu að nýta sér fyrri eða nýfengna þekkingu sína til að vinna úrvinnsluna á sjálfstæðan og skapandi hátt.
    Bókverkin voru að mörgu leyti ólík þó flest báru þess merki að feta þá leið að rannsaka spurninguna um gildi menntunar á persónulegan hátt. Úrvinnsla bókverksins og hugleiðing um menntun var sterkt til staðar í verkferli nemendanna og myndi það vera áhugavert næsta skref að vinna á ítarlegan hátt með skapandi skrif í verkefninu.

Samþykkt: 
  • 29.1.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/17246


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaverkefni M.Art.Ed Guðrún Benónýsdóttir.pdf5.04 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna