is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > B.S. verkefni - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/17255

Titill: 
  • Jarðlagaeiningar á Rauðabergi. Uppruni og myndun þeirra
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Vestur-Skaftafellsýsla hefur oft verið kölluð sveitin milli sanda. Hún nær frá Mýrdalssandi að Skeiðarársandi. Þarna eru nokkur þekktustu eldstöðvarkerfi landsins frá Kötlu inn af Mýrdalssandi að Grímsvötnum í Vatnajökli svo eru þarna sprungukerfi eins og til dæmis Lakagígar og Rauðhólaröðin. Þarna rann eitt mesta hraun sem runnið hefur á sögulegum tíma þegar gaus í Lakagígum 1783. Vestur-Skaftafellssýsla er einnig þekkt fyrir móbergsmyndunina. Rauðaberg er jörð í Fljótshverfi í Vestur-Skaftafellssýslu. Jörðin afmarkast í vestri af Djúpá að Krossá í austri og hún nær frá Vatnajökli að sjó. Svæðið sem var rannsakað var lítill partur af jörðinni. Skoðaður voru hlíðarnar við bæinn og lesið í jarðsöguna. Jarðlög voru greind og rakin, höggun þeirra metin til þess að gera sér mynd af umhverfisbreytingum. Jarðsagan á Rauðabergi speglar nálægðina við fyrrnefnd eldstöðvarkerfi og nálægðina við Vatnajökul. Þarna eru hraunlög sem renna á yfirborði, ársetlög, jöklaset og svo móbergsmyndunin.

Samþykkt: 
  • 30.1.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/17255


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Jarðlagaeiningar á Rauðabergi.pdf2.45 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna