is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/17294

Titill: 
  • Trúðboð sannleiksengla á Íslandi: Hefðbundin list trúða fyrr og nú
  • Titill er á ensku Clownery in Iceland: Traditional art of clowns now and then
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Með þessari rannsókn er leitast svara við því hvað liggur á bakvið hefðbundinni list leikhústrúða og hvað það er sem heldur trúðum lifandi. Flestir kannast við eða hafa séð trúða í einni eða annari mynd, í kvikmyndum, úti á götu eða á leiksviði, en það gera sér ekki allir grein fyrir að trúðar eiga sér langa og rótgróna forsögu og þjóna kyngimögnuðu hlutverki í samfélagi manna. Trúðar bera minnstu grímu í heimi en grímunotkun hefur verið órjúfanlegur partur af gamanleikjahefð frá upphafi leiklistarsögunnar.
    Fyrsti hluti ritgerðarinnar fjallar um rannsóknarsögu, hugtök og kenningar. Lögð verður áhersla á hugtök í þjóðfræði um hóp og hefð og hugtök sem tengjast sviðslistafræði en sviðslistafræðilegar nálganir hafa verið að riðja sér til rúms innan þjóðfræða síðustu áratugi. Í öðrum hluta ritgerðarinnar er aðferðafræðinni sem beitt var við öflun gagna gerð skil og í þriðja hluta er farið yfir valda þætti úr sögu grímunnar og trúða. Fjórði hlutinn byggir síðan að mestu leyti á viðtölum við viðmælendur sem hafa langa reynslu af trúðsleik en þar má finna frásagnir af fæðingum trúða, leikjum þeirra og viðhorfum til trúðslistarinnar.

  • Útdráttur er á ensku

    The research tries to find out what lies behind the traditional art of theatre clowns and what keeps clowns alive. Most people have some kind of an idea, from movies, street performances or theatre, about what clown is but rarely people realize that clowns have a broad and complicated history. Masks have been an unbreakable part of comedy through the history of theatre and clowns wear the smallest mask in the world.
    The first part of the essay deals with the research history, terms and concepts. The main emphasis is on folkloristic concepts about group and tradition and concepts that come from performance studies. The second part describes the methodology that was used to collect material for the research and the third part addresses some important parts from the history of masks and clowns. The fourth part is mostly based on interviews with experienced clowns in Iceland and discusses their world view towards clownery.

Samþykkt: 
  • 3.2.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/17294


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Trúðboð sannleiksengla á Íslandi.pdf1.71 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna