is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1731

Titill: 
  • Endurnýtingarkerfi með lífhreinsi, áhrif bætibaktería
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Aðdragandi verkefnisins var sá að nýlega var lokið við hönnun og
    uppsetningu á tveimur endurnýtingarkerfum í rannsóknaraðstöðu
    Hólaskóla í Verinu á Sauðárkróki. Um er að ræða þrjú kerfi með tveimur
    kerjum (rúmmtak 0,8 m3). Eitt kerfið endurnýtir vatn að hluta (PRS) en er
    án lífhreinsis. Vatni frá kerjunum er safnað saman í vatnsgeymi þar sem
    það blandast nýju vatni. Síðan er því pumpað í gegnum sandsíu þar sem
    agnir eru hreinsaðar frá og fer þaðan í loftara þar sem súrefni er bætt í
    vatnið og koltvísýringur fjarlægður. Í þessu kerfi eru fremur ör vatnsskipti
    og tekur um sex til átta klukkustundir að endurnýja vatnið. Hin kerfin tvö
    eru endurnýtingarkerfi (RAS) og tekur um 48 klukkustundir að endurnýja
    vatn í þeim. RAS kerfin eru með sitt hvorum lífhreinsinum en að öðru
    leyti eins hannað og PRS kerfið.
    Markmið verkefnisins var að rannsaka fjölda ræktanlegra baktería RAS
    kerfis í bleikjueldi, og hvaða áhrif meðhöndlun með blöndu þekktra
    bætibaktería (þrjár tegundir) hefði á heildarfjölda baktería og vatnsgæðin í
    kerfunum. Bakteríurnar hafa verið notaðar við tilraunir á lúðueldi Fiskey
    hf. í Eyjafirði. Vatnsgæði og fjöldi ræktanlegra baktería í RAS kerfinu
    fyrir og eftir meðhöndlun bætibaktería var skoðað. Sömu atriði voru
    könnuð og borin saman í RAS og PRS, þar sem engar bætibakteríur voru
    settar. Heildarfjöldi ræktanlegra baktería jókst ekki í RAS kerfinu eftir að
    bætibakteríum hafði verið bætt út í kerfið. Ennfremur urðu ekki breytingar
    á vatnsgæðum (O2, pH, CO2 and NH3) í RAS kerfinu eftir að meðhöndlað
    hafði verið með bætibakteríum. Bakteríufjöldi í RAS og PRS kerfunum
    var svipaður og vatnsgæði í báðum kerfum var innan ásættanlegra marka.
    Niðurstöður verkefnisins benda til þess að bætibakteríur hafa ekki áhrif á
    vatnsgæði í endurnýtingarkerfum fyrir bleikju.

Samþykkt: 
  • 22.7.2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1731


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MI-BSritgerd(pdf2).pdf4.28 MBOpinnEndurnýtingarkerfi með lífhreinsi-heildPDFSkoða/Opna