Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/17386
Verkefni gekk út á að hanna og teikna um 180 m2 steinsteypt hús með innbyggðum bílskúr og utanáliggjandi sólstofu úr timbri. Það átti að hafa þrjú svefnherbergi þar af tvö samliggjandi þannig að seinna mætti opna á milli og stækka.Það var valin lóð í Leirvogstungu Mosfellsbæ nánar tiltekið Vogatunga 3 og hús hannað á þá lóð.Verkefnið inniheldur aðaluppdrætti, byggingaruppdrætti, burðarþolsuppdrætti lagnauppdrætti ásamt vinnumöppu og lokaskýrslu. Í lokaskýrslu kemur fram verklýsing, tilboðsskrá, magnskrá ásamt útreikningum fyrir burðarþol og varmatapsútreikninga. Vinnumappa inniheldur m. a. fundargerðir nemanda ásamt verkáætlun. Markmið þessa lokaverkefnis er að nemendur sýni fram á verkþekkingu og faglega hæfni við tæknilegar úrlausnir í hönnun, skipulagi og þróun út frá þeirri þekkingu sem nemendur hafa aflað sér í þeim námsgreinum sem fylgja námi í byggingariðnfræði.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Skýrsla.pdf | 2.44 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Vogatunga 3.pdf | 1.71 MB | Opinn | Fylgiskjöl | Skoða/Opna |