is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Bifröst > Viðskiptadeild > Lokaverkefni í viðskiptadeild (BS) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/17479

Titill: 
  • Lúxusskútusiglingar á Vestfjörðum og við Grænlandsstrendur : viðskiptalíkan
  • Titill er á ensku Luxury sailboating in Westfjords and the coast of Greenland : business canavas
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Tækifærum í ferðaþjónustu á Íslandi fer hratt fjölgandi með auknum fjölda ferðamanna. Starfrækt eru ýmis ferðaþjónusufyrirtæki á landinu með mismunandi starfsemi. Lúxusferðir hafa notið aukinna vinsælda undanfarin ár og datt frumkvöðlinum Hagbarði Marinóssyni í hug að setja á laggirnar fyrirtæki með lúxusskútuskiglingar fyrir ferðamenn. Hugmyndin er enn á byrjunarstigi og í verkefni þessu er hún sett upp í viðskiptalíkan Osterwalder og Pigneur. Skoðaðar eru hinar ýmsu breytur eins og möglegur markhópur, hvað hugmyndin hefur upp á að bjóða, hvernig er hægt að koma henni til viðskptavinar, hvaða kostnaðarliði þarf að hafa í huga og hvernig hægt er að skapa tekjustreymi.
    Einnig er farið yfir hvaða auðlindum hugmyndin býr yfir og hverjir mögulegir samstarfsaðilar eru ásamt því að farið er yfir helstu aðgerðir sem þarf að framkvæma til að koma fyrirtækinu á laggirnar. Til að meta hugmyndina enn frekar notaðist skýrsluhöfundur við SVÓT greiningu til að finna hina ýmsu kosti og galla. Út frá þeim gögnum sem komu fram mat skýrsluhöfundur einnig hvort markaður væri fyrir lúxusskútusiglingar á Íslandi og telur svo vera. Hugmynd Hagbarðs er góð að mati skýrsluhöfundnar en það þarf að útfæra hana betur, gera kostnaðaráætlun og skoða jafnvel möguleika á meiri starfgsemi samhliða lúxussiglingunum áður en lengra er haldið.

Athugasemdir: 
  • Ritgerðin er lokuð til 2023
Samþykkt: 
  • 25.3.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/17479


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
HrafnhildurHafsteinsdottir_BScVerkefni.pdf6.1 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna