Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/17510
Þann 27. apríl 2009 voru samþykkt á Alþingi lög nr. 54 sem kváðu á um breytingu á XXII. kafla almennra hegningalaga nr. 19/1940. Um var að ræða breytingu á 206.gr. laganna sem varðar vændi og viðurlög við þeirri háttsemi. Sú leið var valin að fylgja fordæmi Svíþjóðar en árið 1998 var þar leitt í lög að refsivert væri að kaupa vændisþjónustu og varðaði brot gegn lögunum sektum eða hálfs árs fangelsi. Lögunum var svo breytt aftur vorið 2005 og var ákvæði laganna flutt í hegningarlögin um leið og ákvæðum um kynferðisbrot var breytt, sbr. 6. kafla, brotsbalken. Þessi breyting sem hlaut yfirskriftina „sænska leiðin“ hafði nokkurn aðdraganda hér á landi, þannig hafði nokkrum sinnum áður verið lagt samskonar frumvarp fyrir löggjafann en ekki hlotið brautargengi. Forsaga þess að frumvarpið var lagt fram þá var að settur hafði verið á fót starfshópur sem skoðaði reynslu af mismunandi löggjöf um vændi, klámiðnað og mansal í Evrópu. Í skipunarbréfi hópsins sagði: ,,Sérstaklega er þess farið á leit að hópurinn kynni sér reynsluna af þeirri löggjöf í Svíþjóð sem gerir kaup á vændi refsiverð og meta kosti þeirrar löggjafar og galla. Reynt verður, eftir því sem raunhæft er, að bera reynsluna af mismunandi viðhorfum og löggjöf í nágrannalöndunum saman við aðstæður hér á landi.“
Það er ætlun mín í þessari ritgerð að leita svara við þeirri spurningu hvað hafi áunnist með tilkomu ákvæðisins með tilliti til fjölgunar ákærra, dómsmála og sakfellingarhlutfalls. Ég mun vísa til nýrra talna frá skrifstofu Ríkissaksóknara og til efnis útgefnu af Ríkislögreglustjóra sem sýna glöggt fram á þessa fjölgun frá lögfestingu ákvæðisins sem kvað á um að kaup á vændisþjónustu skyldu gerð refsiverð. Höfundur mun einnig koma lítillega inn á þau álitaefni sem risu í aðdraganda lagasetningarinnar og hvort frekari lagasetningar sé ef til vill þörf til að stemma stigum við þeirri samfélagslegu vá sem vændi hefur í för með sér.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Þórarinn Snorrason.pdf | 513.51 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |