is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/17633

Titill: 
  • Ólíkir miðlar. Hvernig vilja unglingar miðla upplifun sinni?
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Á undanförnum árum hafa möguleikar íslenskra unglinga til samskipta og miðlunar breyst og aukist. Fartölvur, iPodar, myndavélar og farsímar eru algeng eign hjá unglingum í dag og áralöng þróun hefur gert framleiðendum kleift að koma gífurlegri tækni inn í sífellt smærri tæki, sem auðvelt er að nota hvar sem er. Skólastarf fer ekki varhluta af þessu, skoðanir kennara eru skiptar um hvernig taka eigi á þessum nýju miðlum og hversu vel skólastofur þurfi að vera búnar tækjum.
    Í fræðilegum þætti þessarar ritgerðar var sjónum beint að kenningum sem leggja áherslu á auðugt, opið og hvetjandi námsumhverfi sem byggist upp á virkri þátttöku nemandans og ýtir undir vilja hans til að læra og vekja áhuga hans og tilgang til að takast á við verkefnin. Markmið rannsóknarinnar sem sagt er frá í ritgerðinni var að kanna hvernig unglingar vilja miðla í skólastarfi og hversvegna. Finnst þeim eðlilegt að miðla munnlega eða með skriflegri frásögn, kannski leikrænt, jafnvel með tónlist eða skipar tæknin stærra hlutverk? Hvað liggur að baki? Er það námsumhverfið eða áhuginn? Skipta báðir þættir máli? Einnig var athugað hvort unglingar átta sig á samhengi miðla og þeim fjölþættu möguleikum sem bjóðast með margmiðlun.
    Rannsóknin var gerð með því að leggja könnun fyrir alla tíundubekkinga í tveimur grunnskólum í Reykjavík. Í heildina skilaði það 73 útfylltum spurningalistum. Unglingarnir voru m.a. beðnir um að svara hvernig þeir myndu vilja segja bekknum sínum frá ímynduðu ferðalagi sem þeir færu í. Þeim gafst kostur á að svara með því að haka við ákveðna
    möguleika en einnig gátu þeir bætt fleiri möguleikum við.

    Niðurstöðum könnunarinnar og öðrum rannsóknum ber saman um að í auknum mæli sé ungt fólk “media multitasking” þ.e. noti fleiri en einn miðil á sama tíma. Það er því umhugsunarefni hvort ekki þurfi að efla margmiðlun í skólastarfi og gera nemendum kleift að blanda saman á auðveldan hátt „hefðbundnum“ miðlunaraðferðum svo sem munnlegri frásögn eða skrifuðum texta við nýja boðskiptatækni s.s. með tölvum, myndavélum og upptökutækjum.

Samþykkt: 
  • 2.5.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/17633


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
lokaritgerd_olikirmidlar_sigridur.pdf866.45 kBLokaður til...01.01.2100HeildartextiPDF