is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/17773

Titill: 
  • Bótagrundvöllur laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu
Námsstig: 
  • Meistara
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Heilsan er það dýrmætasta sem við eigum. Á lífsleiðinni mun ávallt eitthvað koma upp á og öll þurfum við einhverntíman að leita aðstoðar hjá fagfólki í heilbrigðisþjónustunni. Þar getur ætíð eitthvað farið úrskeiðis, líkt og á öllum sviðum hins mannlega lífs, sem getur haft miklar afleiðingar í för með sér fyrir sjúklinga.
    Almenna reglan er sú að sjúklingar eiga aðeins rétt til bóta ef um saknæma háttsemi einhvers heilbrigðisstarfsmanns var að ræða.
    Árið 2001 gengu í gildi lög um sjúklingatryggingu nr. 111/2000 sem voru sett með það að markmiði að bæta réttarstöðu sjúklinga og auka bótarétt þeirra vegna tjóns er þeir verða fyrir í tengslum við rannsókn eða læknismeðferð. Með lögunum er horfið frá hinni almennu sakarreglu og koma því nú fleiri reglur til greina um grundvöll bóta á þessu sviði réttarins.
    Viðfangsefni ritgerðarinnar er að kanna nánar réttarstöðu sjúklinga á grundvelli laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu og í hverju hinn aukni bótaréttur felst og hvernig hann víkur frá almennum reglum skaðabótaréttarins. Aðallega er fjallað um bótagrundvöll laganna sem er í 2. gr. og hvernig hann víkur frá almennum reglum skaðabótaréttarins, um bótaskilyrði ákvæðisins og um framkvæmd þess í íslenskum rétti.

Samþykkt: 
  • 5.5.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/17773


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Hildur Eyþórsdottir.pdf883.8 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna