is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/177

Titill: 
  • Viðhorf skjólstæðinga til þjónustu iðjuþjálfa
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í dag eru einstaklingar farnir að gera kröfur um að vera þátttakendur í þeirri
    heilbrigðisþjónustu sem þeim er veitt og vilja taka ábyrgð á henni. Iðjuþjálfar hafa reynt að
    koma til móts við þessar kröfur með því að veita skjólstæðingsmiðaða iðjuþjálfun en hún
    leggur áherslu á samvinnu, gagnkvæma virðingu og samábyrgð iðjuþjálfa og skjólstæðins.
    Heimildir sýna að skjólstæðingsmiðuð iðjuþjálfun eykur árangur í iðjuþjálfun og ánægju
    skjólstæðinga með þjónustu iðjuþjálfa.
    Aðaltilgangur verkefnisins var að kanna viðhorf skjólstæðinga í endurhæfingu til
    þjónustu iðjuþjálfa með því að fá upplýsingar um hvort þjónusta iðjuþjálfa hafi verið
    skjólstæðingsmiðuð, hversu ánægðir skjólstæðingar voru með þjónustuna og hvort hún hafi
    borið árangur og þá hvernig. Spurningalisti var sendur til þátttakenda til að afla upplýsinga í
    rannsókninni. Úrtakið var 38 einstaklingar sem notið höfðu þjónustu iðjuþjálfa á Landspítala
    háskólasjúkrahúsi (LSH) Grensási og svöruðu 22 (58%) einstaklingar spurningalistanum.
    Lýsandi megindleg rannsóknaraðferð var notuð og niðurstöður settar fram í texta og
    myndum. Niðurstöður sýndu að viðhorf skjólstæðinga í endurhæfingu til þjónustu iðjuþjálfa
    var almennt jákvætt þar sem flestir þátttakendur voru ánægðir með þjónustuna og töldu að
    hún hafði borið árangur. Einnig voru sjö lykilþættir skjólstæðingsmiðaðrar iðjuþjálfunar að
    mestu leyti hafðir að leiðarljósi í þjónustu iðjuþjálfa en þremur þáttum var ekki nægilega vel
    mætt að mati þátttakenda. Af þessum niðurstöðum er hægt að sjá hvernig best er að haga
    þjónustunni eftir þörfum og óskum skjólstæðinga
    Lykilhugtök: Endurhæfing, skjólstæðingsmiðuð iðjuþjálfun, skjólstæðingar iðjuþjálfa,
    viðhorf og þjónusta iðjuþjálfa.

Samþykkt: 
  • 1.1.2005
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/177


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
vidhorfskj.pdf2.78 MBOpinnViðhorf skjólstæðinga til þjónustu iðjuþjálfa - heildPDFSkoða/Opna