is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1783

Titill: 
  • The effects of temperature in growth of the Atlantic cod (Gadus morhua)
Námsstig: 
  • Meistara
Höfundur: 
Útdráttur: 
  • Hitastig er sá umhverfisþáttur sem hefur einna mest áhrif á vöxt fiska. Vöxtur
    ákvarðast einnig af öðrum þáttum eins og fóðurnýtingu (FCR), kynþroska og líkamsástandi,
    en allt eru þetta þættir sem geta haft áhrif á sambandið á milli hitastigs og vaxtarhraða.
    Markmiðið með þessu verkefni var annarsvegar að búa til vaxtarlíkan til að áætla vöxt ýmissa
    stærðarflokka af þorski (Gadus morhua) sem alinn er við mismunandi hitastig, og hinsvegar
    að kanna áhrif hitastigs og líkamsþyngdar á holdstuðul (K).
    Vaxtarlíkanið sýnir fram á að kjörhitastig fyrir vöxt (Topt.G) og vaxtarhraði við kjörhita
    (Gmax) lækkar með aukinni líkamsþyngd. Líkanið áætlar að 30 g þorskseiði sem alin eru í
    sjókví frá 15. maí, nái í lok þriðja árs 4.6 kg við Norðvestur Ísland og 6.3 kg við Vestur
    Noreg.
    Heildar samband þyngdar og lengdar fyrir 8-1303 g þorska sem aldir voru við 4-20°C
    sýndi að vöxtur fiskanna var jákvætt allometrískur (a=0.0045, b=3.257). Áhrif hitastigs á
    holdstuðul voru mest á minnstu stærðarflokkana (8-16 g), en áhrifin voru ekki tölfræðilega
    marktæk á stærri fiska (70-1303 g). Hlutfallslegur holdstuðull (Krel) jókst með þyngd hjá fiski
    sem alinn var við 4°C, en lækkaði við 16 og 20°C. Á 8 og 12 °C var Krel hátt fyrir flesta
    stærðarflokka.
    Lykilorð: Hitastig, Holdstuðull, Vöxtur, Þorskur

Samþykkt: 
  • 25.7.2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1783


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Tómas.pdf1.91 MBOpinnHeildPDFSkoða/Opna