is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/18051

Titill: 
  • Vinnustaðamenning alþjóðlegs þjónustufyrirtækis
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Vinnustaðamenning er mikilvægur hluti af allri starfsemi fyrirtækja og stofnanna og hefur áhrif á árangur og frammistöðu. Hver skipulagsheild hefur sína vinnustaðamenningu sem mótast af undirliggjandi hugmyndum og skoðunum starfsfólks, gildum og venjum og setur viðmið um æskilega og óæskilega hegðun innna skipilagsheildarinnar.
    Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á vinnustaðamenningu tveggja sviða innan alþjóðlegs þjónustufyrirtækis með höfuðstöðvar í Reykjavík með því að greina styrkleika og veikleika hennar. Að auki er gerður samanburður á viðhorfi til vinnustaðamenningar og árangurs fyrirtækisins hjá starfsfólki með ólíkan starfsaldur.
    Rafrænn spurningalisti sem byggir á líkani Denison, Denison organizational culture survey (DOCS), var lagður fyrir starfsfólk fyrirtækisins í janúar og febrúar 2014. Alls svöruðu 71 starfsmaður könnuninni. Spurningalistinn skiptist í fjórar yfirmenningarvíddir sem mæla þáttöku og aðild, samkvæmni og stöðugleika, aðlögunarhæfni og hlutverk og stefnu en rannsóknir hafa sýnt fram á að þessi menningareinkenni hafa áhrif á árangur skipulagsheilda.
    Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að vinnustaðamenning fyrirtækisins einkennist af skýrri og markvissri stefnu og starfsfólk finnur fyrir þeim sameiginlegum markmiðum sem ríkja innan fyrirtækisins. Helsti veikleiki vinnustaðamenningar fyrirtækisins er skortur á samstöðu milli deilda og starfsfólk telur fyrirtækið eiga erfitt með að takast á við breytingar í viðskiptaumhverfi sínu. Starfsfólk er ánægt í starfi og telur heildarframmistöðu fyrirtækisis mjög góða.

Samþykkt: 
  • 12.5.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/18051


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Vinnustadamenning_lokaeintak_Andres.pdf1.89 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna