is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1807

Titill: 
  • Útivera barna - sami leikur, betra rými : hvernig má efla áhuga elstu barna leikskólans á útivist
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Við erum tveir leikskólakennarar sem útskrifuðumst frá Fósturskóla Íslands á árunum1994 og 1996 og höfum síðan þá starfað í leikskólum í Reykjavík. Í störfum okkar höfum við talið okkur sjá minnkandi áhuga, hjá börnum, á útiveru eftir því sem þau eldast. Það þykir okkur miður og viljum leggja okkar að mörkum til þess að bæta úr því með þessu ritgerðarkorni.
    Megin viðfangsefni þessa lokaverkefnis til B.Ed. gráðu var að skoða hvernig mætti efla áhuga elstu barna leikskólans á útivist sem er stór þáttur í leikskólastarfinu. Í upphafi er fræðilegur kafli sem fjallar um hugmyndafræði upeldisfrömuðarins John´s Dewey og þær hugmyndir sem hann hafði um menntun barna. Þar er einnig fjallað um kennsluaðferðir Caroline Pratt sem taldi kveikjuna í námi barna væri að finna í leik þeirra.
    Við skoðuðum útivistina hjá elstu börnum í leikskólum og þá áhrifavalda sem geta dregið úr áhuga barna á henni. Einnig hvernig tengja má útivistina öllum námssviðum sem eru í námskrá elstu barna leikskóla. Þar vitnum við í rannsókn sem Kristín Norðdahl gerði hér á landi í leikskólanum Álfheimum á Selfossi á árunum 2002-2004 og einnig í útiskóla sem við höfum heimsótt í Danmörku og Svíþjóð.
    Tekið var sitthvort viðtalið við leikskólakennara og starfsmann sem báðir hafa mikinn áhuga á útiveru með börnum. Einnig voru tekin viðtöl við tvö fimm ára börn sem eru á sömu leikskólum og viðkomandi starfsmenn.
    Helstu niðurstöður þessa verkefnis eru að börnin hafa gaman af útiveru og elstu börnin hafa sérstaklega gaman af því að fara í vettvangsferðir. Þátttaka starfsmanna er meiri með börnum í vettvangsferðum en í útiverunni á leikskólalóðinni. Skipulagið í leikskólunum er oft á tíðum ekki nægjanlega sveigjanlegt og börnin hafa lítið val um það hvenær þau fara út eða hvað þau eru lengi.

Athugasemdir: 
  • Leikskólabraut
Samþykkt: 
  • 28.8.2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1807


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Sami_leikur.pdf293.67 kBLokaðurHeildartextiPDF