Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/18216
Í þessari ritgerð er skoðað samband byggingarlistar og steindra glugga í tveimur kirkjum á Íslandi sem byggðar voru á tímabilinu 1958 - 1971. Fjallað verður um glerlistaverk Gerðar Helgadóttur í Kópavogskirkju og glerlistaverk Leifs Breiðfjörð í Bústaðakirkju. Til að kynnast sambandi þessarra tveggja listgreina betur verður farið yfir vegferð og hlutverk steinda gluggans og fjallað um breytingar sem áttu sér stað í byggingarstíl á Íslandi eftir síðari heimsstyrjöldina. Spurt verður að hverju þurfi að huga að við gerð steindra glugga og hvernig arkitektar og listamenn unnu saman við gerð glugganna í ofantöldum kirkjum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
baritgerð.pdf | 1.76 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |