Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/18378
Verkefnið samanstendur af tveimur handritum ætluðum til birtingar í tímariti. Fyrri greinin kannaði tengsl milli atvinnustöðu, vinnusiðferðis og efnislegra lífsgæða. Niðurstöður sýndu annars vegar að efnisleg lífsgæði eru minni hjá þeim sem eru atvinnulausir en hjá þeim sem eru í vinnu og hins vegar að sambandið veltur á vinnusiðferði. Í seinni greininni eru mislangir sjálfsmatskvörðar bornir saman. Niðurstöður studdu tilgátur að hluta og sýndu fram á samspil milli kvarðalengdar og orðagilda, sem notuð eru á svarmöguleikana, þegar gæði kvarðanna voru metin.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Arna Frímannsdóttir.pdf | 1.01 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |