Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1849
Í ritgerðinni skoða ég hvernig lestrarnám þróast hjá elstu börnunum í leikskóla og yngstu börnunum í grunnskóla. Í byrjun ritgerðarinnar er fjallað um kenningar í lestrarnámi og helstu undirstöðuþætti undir lestrarnám ungra barna. Einnig er tæpt á hinum ýmsu rannsóknum sem gerðar hafa verið í tengslum við efni ritgerðarinnar. Að lokum er fjallað um lestrarnám í leikskóla og grunnskóla og stuttlega lýst hvernig hægt er að vinna með undirstöðuþætti undir lestrarnám. Fjallað er í stuttu máli um hlutverk kennarans í grunnskóla. Reynt er að tengja saman fyrri umfjöllun um undirstöður lestrarnáms við umfjöllun um lestrarnám í leikskóla og grunnskóla.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni til B.Ed..pdf | 288.03 kB | Lokaður | Heildartexti |