is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/18528

Titill: 
  • Tengsl líkamshreysti, hreyfifærni, hugrænnar færni og greindar hjá unglingum í 10. bekk grunnskóla
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Markmið:
    Meginmarkmið rannsóknarinnar var að kanna tengsl líkamshreysti, hreyfifærni, hugrænnar færni og greindar hjá unglingum í 10. bekk í grunnskóla. Undirmarkmið rannsóknarinnar var að bera saman líkamshreysti, hreyfifærni, hugræna færni og greind tveggja hópa nemenda úr 10. bekk. Annars vegar nemenda úr tveimur grunnskólum Reykjavíkur og hins vegar nemenda sem tilheyrðu unglingalandsliðshópum í knattspyrnu, handknattleik og frjálsíþróttum.
    Aðferðir:
    Líkamshreysti, hreyfifærni, hugræn færni og greind 141 unglings var mæld, þar af voru 107 nemendur tveggja grunnskóla í Reykjavík sem valdir voru með slembiúrtaki og 34 afreksíþróttaunglingar sem tilheyrðu ungligalandsliðshópum í knattspyrnu, handknattleik og frjálsíþróttum þegar rannsóknin var gerð. Líkamshreysti var mæld með fjórum stöðluðum prófum; 20 metra spretthlaupi, 6 mínútna þolhlaupi, langstökki án atrennu og setseilingarprófi (e. sit and reach) sem mæla hraða, þol, kraft og liðleika. Hreyfifærni var prófuð með MABC-2 hreyfifærniprófi sem inniheldur átta þrautir sem meta fínhreyfingar, boltafærni og jafnvægi. Hugræn færni var prófuð með Ottawa Mental Skills Assesment Tool (OMSAT-3) prófi sem innheldur 48 spurningar og út frá svörunum má meta grundvallarfærni, sállíkamlega færni og vitræna færni. Greind var prófuð með Raven Standard Progressive Matrices (Raven SPM) sem er fimm kafla óyrt greindarpróf með tólf þrautum í hverjum kafla.
    Niðurstöður
    Tengsl árangurs á OMSAT-3 hugræna færniprófinu og líkamshreystiprófinu mældust marktæk miðað við allan hópinn þegar leiðrétt hafði verið fyrir kynjamun og mun á afrekshópi og skólahópi. Marktæk fylgni mældist einnig á milli hugrænnar færni og líkamshreysti. Tengsl árangurs á MABC-2 hreyfifærniprófi og hreystiprófinu mældust marktæk miðað við allan hópinn. Marktæk tengsl mældust á milli þessara prófa hjá báðum kynjum og í báðum hópunum (afrekshópi og skólahópi). Tengsl árangurs á Raven-greindarprófinu og hinna prófanna þriggja, OMSAT-3, MABC-2 og líkamshreysti, mældust ekki marktæk. Unglingar í afrekshópi náðu marktækt betri árangri á OMSAT-3 hugræna færniprófinu, MABC-2 hreyfifærniprófinu og líkamshreystiprófinu en unglingar í skólahópi. Drengir náðu marktækt betri árangri á líkamshreystiprófinu en stúlkur. Marktækur munur mældist ekki á árangri drengja og stúlkna í afrekshópi og skólahópi á Raven greindarprófinu.
    Ályktun:
    Tengsl eru á milli líkamshreysti og hreyfifærni og einnig á milli líkamshreysti og hugrænnar færni hjá unglingum í 10. bekk. Drengir eru hraustari en stúlkur í 10. bekk bæði í skólahópi og afrekshópi. Afreksunglingar í 10. bekk eru hraustari, með betri hreyfifærni og hugræna færni en aðrir skólaunglingar þó ekki mælist munur á greind hópanna.

Samþykkt: 
  • 30.5.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/18528


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MSritgerð_Thrainn_66_7.april 2014_haskolaprent.pdf1.43 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna