is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/18720

Titill: 
  • Kynfræðsla unglinga : viðhorf kennara og skólahjúkrunarfræðinga til kynfræðslu unglinga
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Umfjöllunarefni rannsóknarinnar sem lýst er í þessari ritgerð er kynfræðsla
    unglinga. Tilgangur hennar var að kanna hvert viðhorf kennara og
    skólahjúkrunarfræðinga á Akureyri er til kynfræðslu. Rannsóknin var
    eigindleg þar sem notuð var fyrirbærafræðileg nálgun. Viðtöl voru tekin við
    sex einstaklinga, þrjá kennara og þrjá skólahjúkrunarfræðinga sem allir hafa
    reynslu og þekkingu á kynfræðslu.
    Rannsóknarspurningin sem lagt var upp með í upphafi rannsóknar var:
    Hvert er viðhorf kennara og skólahjúkrunarfræðinga til kynfræðslu? Helstu
    niðurstöður voru þær að viðmælendur höfðu heilt á litið nokkuð jákvætt
    viðhorf til kynfræðslu og töldu allir hana vera mikilvægan þátt í lífi unglinga.
    Þá kom í ljós að öllum viðmælendum fannst að fræðslan ætti að byrja fyrr en
    hún gerir í dag. Þáttur foreldra þegar kemur að því að fræða börnin sín um
    kynlíf er er ekki mikill að þeirra mati og því fannst þeim mikilvægt að
    fræðslan færi fram í skólanum. Með því að fræða nemendur um kynlíf er
    verið að gefa þeim tækifæri til að fá svör við spurningum sem þeir fá ef til
    vill ekki frá foreldrum sínum. Viðmælendur töldu jafnframt að áhrif kláms
    væru sýnileg í fræðslunni og töluðu allir um mikilvægi þess að eyða
    ranghugmyndum sem nemendur kynnu að hafa úr kláminu.

  • Útdráttur er á ensku

    The aim of this study is to describe and analyze the conduct of sex education
    for teenagers. The objective is to examine the attitude and outlook towards
    sex education amongst teachers and school nurses in Akureyri. The study is
    qualitative and a phenomenological approach was used. Six individual
    interviews were conducted; with three teachers and three school nurses, all of
    whom are experienced and knowledgable sex educators.
    The researcher started out with the following research question: What is
    the attitude towards sex education amongst teachers and school nurses? The
    main conclusion was that the participants had a positive view towards sex
    education and believed it to be an important aspect of teenage life; they also
    thought that this form of education should begin earlier than it does. Parental
    involvement is minimal in their opinion, which makes it more important that
    students get the opportunity to receive answers to questions that may arise in
    connection with sex education in schools. The interviewees believe that the
    influence of pornography is apparent in the education and all of them spoke
    about the importance of correcting and eliminating the misconception the
    students might have in regards to pornography.

Samþykkt: 
  • 10.6.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/18720


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
RakelÓlaSigmundsdóttir_Ritgerð_KDHA (1).pdf652.95 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna