Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1878
Ljóðabókin Hvernig getur þú sofið? er ásamt meðfylgjandi greinargerð lokaverkefni mitt til B.Ed prófs við Kennaraháskóla Íslands. Í ljóðabókinni er að finna 26 ljóð sem öll mætti nota í kennslu. Yrkisefnin eru fjölbreytt og tengjast ýmsum þáttum mannlegs lífs. Í greinargerðinni er almennt fjallað um ljóð, stílbrögð í ljóðum og ljóðakennslu. Ásamt því að stiklað er á stóru um gagnsemi námsgreinarinnar lífsleikni og að lokum er sett fram kennsluverkefni. Kennsluverkefni þetta tengir saman námsgreinarnar íslensku og lífsleikni og er hugsað sem stigvaxandi forvarnarverkefni fyrir elstu nemendur grunnskólans.
Lykilorð: Ljóðabók, greinargerð.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Greinargerð.pdf | 497.72 kB | Opinn | "Greinargerð með ljóðabók" - heild | Skoða/Opna | |
ljóðabók.pdf | 184.13 kB | Opinn | "Hvernig getur þú sofið?" - heild | Skoða/Opna |