is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/18959

Titill: 
  • Gleðjumst yfir fjölbreytileikanum : greinargerð með kennsluhugmyndum með samþættingu námsgreina í huga
  • Gleðjumst yfir fjölbreytileikanum : kennsluhugmyndir með barnabókinni Gummi fer á veiðar með afa
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þessi greinargerð er lokaverkefni til B.Ed.-prófs í kennslufræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Markmið höfunda var að kynna sér samþættingu námsgreina á yngsta stigi grunnskóla og hvernig hægt er að koma til móts við fjölbreyttan nemendahóp. Samþætting í námi hjálpar nemendum að öðlast skilning á viðfangsefnum þar sem notast er við mismunandi nálganir þar sem fleiri en ein námsgrein koma við sögu. Með samþættingu námsgreina eru viðfangsefni sett í samhengi við samfélagið og með því að notast við hana eru nemendur undirbúnir fyrir að verða fullgildir samfélagsþegnar. Með greinargerðinni fylgja kennsluhugmyndir sem eru hugsaðar fyrir kennara nemenda á yngsta stigi grunnskóla. Kennsluhugmyndirnar eru byggðar á barnabókinni Gummi fer á veiðar með afa eftir Dagbjörtu Ásgeirsdóttur. Fundin voru sjö þemu út frá sögunni og búin til verkefni með samþættingu námsgreina í huga. Í kennsluhugmyndunum er að finna lykilspurningar, lýsingu á verkefnum, markmið, námsgögn og hugmyndir að námsmati. Tilgangur kennsluhugmyndanna er að gefa kennurum hugmyndir að því hvernig hægt er að samþætta námsgreinar í kennslu auk þess að sýna fram á hvernig má koma til móts við þarfir ólíkra barna með því að nálgast viðfangsefni með aðferðum og verklagi ólíkra námsgreina.

Samþykkt: 
  • 18.6.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/18959


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Greinargerð.pdf326.77 kBOpinnGreinargerðPDFSkoða/Opna
Kennsluhugmyndir.pdf653.83 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna