Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/18968
Í þessu verkefni skoðum við hvaða úrræði eru í boði á Suðurnesjum til að koma í veg fyrir félagslega einangrun fólks með geðraskanir eða sem geta dregið úr henni. Jafnframt segjum við sögu tveggja kvenna sem eru geðfatlaðar og skoðum viðhorf þeirra til þeirra úrræða sem í boði eru
Þau úrræði sem við skoðuðum eru Björgin – Geðræktarmiðstöð, geðteymi á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, Virkjun mannauðs og velferðar, Samvinna starfsendurhæfing á Suðurnesjum, VIRK – starfsendurhæfing og félagsleg liðveisla.
Verkefnið er byggt á heimildum og viðtölum sem við tókum við konurnar tvær. Einnig byggjum við á viðtölum sem við tókum við fimm starfsmenn sem vinna við virkniúrræðin sem í boði eru. Þeir eru: Hafdís Guðmundsdóttir og Huldu Sævarsdóttir, starfsmenn í Björginni – Geðræktarmiðstöð, Jenný Magnúsdóttir starfsmaður hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum og Ragnhildur Helga Guðbrandsdóttir starfsmaður Samvinnu starfsendurhæfingar. Einnig var tekið óformlegt viðtal við Ingu Láru Hrefnudóttur hjá Virkjun mannauðs og velferðar á Reykjanesi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Að hafa hlutverk.pdf | 284.17 kB | Lokaður til...01.06.2133 | Heildartexti |
Athugsemd: Kafli 4 - Sögur á að vera lokaður