Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1899
PMT/parent management training – Oregon aðferðin er aðferð ætluð fyrir foreldra/uppalendur til að koma í veg fyrir eða draga úr hegðunarfrávikum og kenna börnum nýja hegðun á jákvæðan hátt. Þannig er börnum og unglingum veittur jákvæður stuðningur við hegðun. Verkfæri PMT má vel nota í skólasamfélaginu. PBS/Positive Behaviour Support er leið sem notuð er til að aðlaga verkfæri PMT að skólasamfélaginu. SMT-skólafærni er sú PBS aðferð sem þróast hefur frá Hafnarfirði og er hér til umfjöllunar. Fjallað er um innleiðslu á SMT-skólafærni í skólasamfélagið en með því að aðlaga verkfæri PMT að skólunum er nemendum veittur jákvæður stuðningur við hegðun. Allt starfsfólk sendir þá sömu skilaboðin til barnanna og setur þeim mörk á sama hátt. Þetta veitir bæði börnum og starfsfólki meira öryggi og vinnufrið. Að lokum er svo fjallað um skráningu á hegðunarfrávikum í leikskólanum Sólbrekku. Skráð var tvisvar sinnum í fjórar vikur. Í ljós kom að verulega hafði dregið úr skráðum hegðunarfrávikum á tímabilinu. Það bendir til þess að með innleiðslu á SMT-skólafærni í leikskólann hafi tekist að veita börnunum stuðning við jákvæða hegðun og draga úr hegðunarfrávikum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
(Microsoft Word - fors.pdf | 50.03 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna | |
(Microsoft Word - lokaritgerd.pdf | 1.1 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |