Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/19115
Hjarta- og æðasjúkdómar eru algengustu dánarorsakir í heiminum í dag. Vitað er að ákveðin persónuleikagerð, svokallaður persónuleiki D, er einn áhættuþáttur fyrir slakari batahorfur hjartasjúklinga og hefur einnig tengsl við ýmsa áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdómum. Virkni þessara tengsla eru að hluta til þekkt en enn sem komið er hafa miðlunaráhrif heilsuhegðunar ekki verið mikið rannsökuð. Tengsl persónuleika D við reykingar, hreyfingu og lyfjatöku voru rannsökuð út frá stóru slembiúrtaki úr almennu þýði frá Hjartavernd. Í ljós kom að persónuleiki D tengist meiri reykingum, minni hreyfingu og meiri lyfjatöku, þá sérstaklega inntöku tauga- og geðlyfja. Útfrá þessum niðurstöðum virðist mögulegt að grípa með einhverjum hætti inn í hegðun þessa áhættuhóps til að draga úr hættu þeirra á að þróa með sér hjarta- og æðasjúkdóma.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS RITGERÐ TILBÚIN (1).pdf | 613.16 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |