Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/19121
Grundó á Langó er meistaraverkefni sem unnið er í samvinnu við Akraneskaupstað og annan af tveimur grunnskólum Akraness. Í verkefninu leitast ég við að skoða hvernig menntun til sjálfbærni í grunnskóla getur verið samfélagslegt verkefni.
Nemendur verkefnisins komu úr 5. og 6. bekk og fór verkefnið að mestu fram á Langasandi og á svæðinu þar í kring. Nemendur rannsökuðu dýra- og plöntulíf á sandinum og í kring, ásamt því að safna saman öllu rusli sem þau fundu í rannsóknaleiðangrum sínum. Að rannsókn lokinni var búið til upplýsingaskilti um dýra- og plöntulíf sandsins sem sett verður upp á gönguleið við sandinn nú í vor. Einnig unnu nemendurnir að ruslaskilti sem bar yfirskriftina “Þetta er það sem skilið er eftir...” sem einnig verður sett upp nú í vor. Tilgangur verkefnisins er að nemendur læri að umgangast eigið umhverfi af virðingu og væntumþykju ásamt því að læra að þau geti haft áhrif á eigið samfélag þrátt fyrir ungan aldur.
Verkefnið er unnið út frá kennslufræðilegum nálgunum í grenndarnámi og áherslum á menntun til sjálfbærni. Það er hannað í kringum CRAFT ferlið sem oft er nýtt í samfélgastengum listverkefnum. Að lokum verður verkefnið greint út frá greiningarlykli fyrir menntun til sjálfbærni sem nefnist Connecting the Dots.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Grundó á Langó.pdf | 2.87 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |