Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/19334
Lokaverkefni þetta er handbók um sprengikraftsþjálfun sem nýtist þjálfurum eða íþróttamönnum sem bæta vilja árangur í sinni íþróttagrein. Verkefnið skiptist í tvo hluta, fræðilegan kafla annarsvegar og handbókina hinsvegar. Fræðilegi hlutinn fjallar um sprengikraft og ávinninga sprengikraftsþjálfunar, aðbúnað og tæki og hvað skal hafa í huga við framkvæmd þjálfunarinnar. Handbókin útskýrir í máli og myndum hvernig framkvæma skal æfingarnar sem sérstaklega eru valdar eftir notagildi þeirra. Bókinni er ætlað að auðvelda þjálfurum og íþróttamönnum við val á séhæfðum æfingum og vera auðveld í notkun. Markmið þessa verkefnis er að auka skilning á því hvernig skal framkvæma sprengikraftsþjálfun á réttan og árangursríkan hátt.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Handbók um sprengikraftsþjálfun.pdf | 2.61 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |