Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1936
Þessari ritgerð er ætlað að beina sjónum að því hversu mikilvægt er að efla sjálfsmynd grunnskólabarna. Í fyrri hlutanum voru skoðaðar rannsóknir og hugmyndir ýmissa fræðimanna sem rannsakað hafa fyrirbærið í gegnum tíðina. Skoðuð þróun sjálfsmyndarinnar frá fæðingu til unglingsáranna. Lögð var áhersla á að skoða sjálfsmyndina sem tengist félags- og menningartengdum þáttum. Í seinni hlutanum var farið í gegnum nokkra mikilvæga þætti sem tengjast grunnskólastarfi beint og hvernig hægt er að hafa áhrif á þróun sjálfsmyndar nemendanna.
Mikilvægi þess að hafa ólíkar þarfir nemendanna í huga komu skýrt fram í þessum skrifum. Kennarar þurfa að taka mið af einstaklingnum, ólíkum þörfum hans og leiðum í námi og leik. Þar sem fólk er mjög ólíkt og reynsla þess mismunandi verður það aldrei svo að allir öðlist jafn sterka sjálfsmynd þegar grunnskólanámi lýkur en mikilvægt að efla hvern einstakling eins og kostur er.
Lykilorð.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Það eykur þrótt að þekkja mátt sinn og megin.pdf | 236.01 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Kápa, titilsíða og leiðsögukennari.pdf | 62.61 kB | Opinn | Kápa og titilsíða | Skoða/Opna |