Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/19450
Stærsti og mikilvægasti samfélagsmiðillinn á Íslandi er Facebook. Opinberar stofnanir og fyrirtæki þurfa því að vera virkir þáttakendur þar og mikilvægt er að rödd almennings fái að heyrast þar og henni sé svarað. Í þessari ritgerð verða Facebook- síður fimm opinberra stofnana greindar og áhersla lögð á að greina hvað þær gera rétt og rangt. Enn fremur verða tillögur að úrbótum á núverandi vefsíðum lagðar fram. Við greininguna verða meðal annars hafðar til hliðsjónar þær leiðbeiningar sem finna má í Vefhandbók opinberra stofnanna og í Upplýsingastefnu Stjórnarráðsins sem lýtur að samfélagsmiðlum. Þar sem efnisval skiptir meginmáli á Facebook þá verður eingöngu lögð áhersla á að greina hvaða efni opinberu stofnanirnar, sem greindar verða, setja inn á Facebook-síður sínar og reynt að benda á hvernig bæta má efnistök þeirra. Því betra og fjölbreyttara efni því meiri sýnileika fá stofnanirnar og geta þar af leiðandi skapað jákvæða ímynd og eflt lýðræðislega virkni.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
MA-ritgerd-imynd-opinberra.pdf | 1.03 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |