Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/19462
Markmið þessarar ritgerðar var að kanna hvort og þá hvernig væri hægt að bjóða upp á lausnir fyrir frelsun eigin fjár í fasteignum á Íslandi. Hugmyndin flest í því að fasteigna eigendur nýti veðrými í fasteignum sínum til að taka lán sem hafa öfugan greiðsluferil miðað við almenn húsnæðislán, lántakendur fá fjármuni greidda, í einni greiðslu, yfir tímabil eða í gegnum opna lánalínu. Endurgreiðslan er yfirleitt fjármögnuð með virði fasteignarinnar. Fyrirkomulag lífeyriskerfis Íslendinga var kannað með það fyrir augum að skoða hvort eldri borgarar hefðu nægjanlega miklar mánaðarlegar ráðstöfunartekjur.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Betra er lán en liggjandi fé. Útfærsla á frelsun eigin fjár í fasteignum á Íslandi..pdf | 980.03 kB | Lokaður til...31.12.2134 | Heildartexti |