Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/19471
Viðfangsefni þessarar ritgerðar er upplýsingamiðlun, ímynd og ásýnd flugfélagsins WOW air. Þetta er hagnýtt verkefni sem hefst á fræðilegri umfjöllun um helstu hugtök upplýsingamiðlunar. Rök voru færð fyrir því hvers vegna umfjöllunarefnið væri mikilvægt og var stuðst við hugtök á borð við innri- og ytri upplýsingamiðlun, áfallaáætlun, samfélagsmiðla, ímynd og ásýnd og ýmsar hagnýtar aðferðir sem notast var við við greiningu fyrirtækisins. Gerðar voru tvær eigindlegar rannsóknir, þar sem settar voru upp fullyrðingar í hugarkort og tekin voru viðtöl til að nýta í greiningu á flugfélaginu. Einnig voru gerðar tvær megindlegar rannsóknir þar sem upplýsingamiðlun innanhúss var könnuð og gerð vörumerkjarýni. Niðurstöður úr hugarkortinu og vörumerkjarýninni leiddu í ljós að staðfærsla WOW air skilar sér ágætlega til neytenda. Nokkrir þættir komu þó ekki eins vel út og koma tillögur að úrbótum í síðasta hluta verkefnisins. Niðurstöður innri upplýsingamiðlunar gáfu vísbendingu um að upplýsingamiðlun innanhúss er góð en alltaf er hægt að gera gott betra. Í ljós kom að nauðsynlegt er að kynna fyrir starfsfólkinu boðleiðir til að koma upplýsingum áleiðis og auka vitund starfsfólks á áfallaáætlun fyrirtækisins. Í úrbótum og í viðauka eru drög að stefnum í samfélagsmiðlum, innri upplýsingamiðlun og áfallastjórnun.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Upplýsingamiðlun, ímynd og ásýnd WOW air.pdf | 1.11 MB | Lokaður til...03.05.2134 | Heildartexti |