Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/19499
Markmiðið með verkefninu var að athuga hvaða hugmyndir og kenningar liggja til grundvallar list- og verkgreinakennslu ungra barna, þætti sköpunar í skólastarfi og kennslu sem fer fram í lotum. Þá var einnig skoðað hvernig koma megi til móts við margbreytilega nemendahópa. Til umfjöllunar eru námsgreinarnar leiklist, myndmennt og textílmennt.
Verkefnið skiptist í tvo hluta. Fyrri hlutinn er fræðileg greinargerð þar sem rætt er um fjölbreytni í námi og hvernig koma megi til móts við margbreytilegan nemendahóp og vinna að lýðræði og sköpun í skólastarfi. Því næst er fjallað um list- og verkgreinar og lotubundna kennslu. Leitað er svara við því hvers vegna mikilvægt er að ung börn fái að kynnast list- og verkgreinum og fást við margbreytileg verkefni. Einnig er skipulag kennslu í lotum kannað og hvernig það getur nýst við kennslu í list- og verkgreinum.
Seinni hlutinn er hugmyndasafn með 30 hugmyndum að verkefnum, tíu fyrir hverja námsgrein, þ.e.a.s. leiklist, myndmennt og textílmennt. Hugmyndirnar eru ætlaðar kennurum sem kenna list- og verkgreinar í lotum á yngsta stigi grunnskóla og miðað er við fyrsta og annan bekk. Verkefnin eru útbúin með það í huga að koma til móts við þarfir ólíkra nemenda og jafnframt er stuðst við hæfniviðmið núgildandi aðalnámskrá grunnskóla frá 2013. Þegar nemendur takast á við verkefnin fá þeir tækifæri til að velja eigin leiðir til að leysa þau og nýta sköpunarhæfileika sína. Vonandi nýtast þau kennurum til að skapa jákvætt andrúmsloft í kennslustofunni og skemmtilega og lærdómsríka kennslustund.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ásta Rakel Hafsteinsdóttir.pdf | 1.78 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |