Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/19524
Meginmarkmið rannsóknarinnar er að rýna í sýn stjórnanda á þróun frumkvöðlafyrirtækis á fyrstu æviskeiðum, áskoranir fyrirtækisins og úrlausnir þeirra. Tekið var viðtal við stjórnanda í frumkvöðlafyrirtæki. Helstu niðurstöður eru að stjórnandinn álítur stjórnunarhætti ólíka eftir aldri og stærð fyrirtækis. Fyrst eru þeir óformlegir en eftir því sem fyrirtækið vex verður stjórnskipulagið formlegra og verkaskipting skýrari. Áskoranir í stjórnun frumkvöðlafyrirtækis eru ýmsar: Samskiptaerfiðleikar, sérstaklega á milli landa, reynsluleysi stjórnenda og innan stuðningsumhverfis frumkvöðla. Tímasetning og hraði tækniþróunnar. Ísland er að mati stjórnandans ekki vænlegt umhverfi fyrir frumkvöðla vegna skorts á fjármagni og tengslum við erlenda fjárfesta. Hann bendir á að slök enskukunnátta hrjái íslenska frumkvöðla. Viðmælandinn ræðir ýmsar leiðir til að takast á við þessar áskoranir. Hann hvetur frumkvöðla til að flytja rekstur erlendis og byggja upp erlend tengsl. Þörf er á að endurskipuleggja stjórnskipulag eftir áherslum hverju sinni. Að lokum áréttar stjórnandinn mikilvægi þess að fá rétta fólkið með sér.
Lykilorð: frumkvöðlafyrirtæki, frumkvöðlar, þróun fyrirtækja, vöruþróun, stjórnunarhættir
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Þróun, áskoranir og lausnir í stjórnun frumkvöðlafyrirtækis.pdf | 544.64 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |