Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/19531
Í þessari rannsókn mun vera farið yfir þróun verkefnastjórnunar á Íslandi með því að afla upplýsinga úr bókum, tímaritum, frá ýmsum stofnunum og með viðtölum við reynda verkefnastjóra. Með þróun er átt við að komast að hvaða breytingar hafa orðið á faginu verkefnastjórnun í til dæmis aldri og kynjahlutfalli verkefnastjóra gegnum tíðina, hvernig tæki og tól hafa breyst með árunum, hvers konar breytingar hafa orðið í kennsluaðferðum og hvort þekking og skilningur á faginu hafi aukist? Einnig verður svarað spurningum um hvað mætti betur fara í verkefnastjórnun á Íslandi í dag og hvert líklegt sé að hún stefni á næstu árum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Þróun verkefnastjórnunar á Íslandi og hvert stefnir hún.pdf | 767.69 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |