is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/19574

Titill: 
  • Stýrinet í íslenskri stjórnsýslu. Rafræn byggingargátt
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Í þessari rannsókn var sjónum beint að innleiðingu og framkvæmd stefnu stjórnvalda um eftirlit með mannvirkjagerð á Íslandi með nýjum lögum um mannvirki nr. 160/2010 og framkvæmd þeirra. Bakgrunnur og tilurð lagasetningarinnar var kannaður ásamt framkvæmd laganna sem er í höndum nýrrar stofnunar, Mannvirkjastofnunar. Til þess að Mannvirkjastofnunin gæti sinnt nýju hlutverki þurfti að leita nýrra leiða í bæði tilhögun eftirlitsins en einnig í framkvæmdinni sjálfri. Í lögunum er kveðið á um að stofnunin skuli koma upp gagnasafni um allar byggingaframkvæmdir á landinu sem hefur fengið nafnið Rafræn byggingargátt. Gerð og innleiðingu Rafrænnar byggingargáttar kallaði á samvinnu margra aðila og á nýsköpun í opinberri stjórnsýslu.
    Stýrinet (e. governance network) hefur verið myndað um verkefnið en stýrinet er nýlegt fyrirbæri sem skilgreint er samkvæmt Koliba (2011) sem samstarfsvettvangur aðila sem vinna að framkvæmd og stefnumótun hins opinbera. Hér verður skoðað hvernig tiltekið stýrinet myndaðist og dregin upp mynd af virkni þess í ljósi fræðikenninga um stýrinet og tilurð þeirra. Markmiðið með rannsókninni var að draga lærdóm af því hvernig þau myndast, virkni þeirra og hvað einkennir þau. Rannsóknin er tilviksrannsókn og var gerð með blönduðum rannsóknaraðferðum. Gagna var aflað með þrennum hætti, í rituðum heimildum, með viðtölum og í spurningakönnun meðal þátttakenda í vinnu stýrinetsins um Rafræna byggingargátt. Við greiningu á vinnu stýrinetsins var notast við greiningaramma til þess að kortleggja og flokka virkni þess og einkenni.
    Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að stýrinetið um Rafræna byggingargátt myndaðist þegar þörf var á skilvirku flæði þekkingar og samstarfi þvert á hefðbundnar valdaleiðir. Það sem einkennir stýrinetið er að því er stýrt frekar en stjórnað með boðvaldi, og niðurstöður eru fengnar með samræðum og samvinnu milli þátttakenda.

  • Útdráttur er á ensku

    The focus of this research was on the introduction and implementation of public policy in regulation of the construction industry in Iceland with the passing of a new Building Act no. 160/2010. Background and history of the legislative action was examined together with the implementation of the Act in the hands of a new agency, the Iceland Construction Authority. The new agency is responsible for the administration of laws and regulations regarding construction. In order to fulfil the new role the agency had to look for new ways in inspection procedures and surveillance to control building work. The Act provides that the agency shall set up a database, Electronic Construction Permits, to hold administrative information on all construction permits. Preparation and adoption of the database called for cooperation of many parties and innovation in public administration.
    The project has been undertaken within a governance network, defined by Koliba (2011) as an interorganizational network of actors working together to implement public policies and influence their creations. The research will highlight how this particular governance network was constructed and examine the structure of the network in light of the literature on governance networks. The objective of the study was to learn about how the network was constructed and the dynamics that characterizes it. The study is a case study and was performed using mixed research methods. Data was collected in three ways, within the literature, with interviews and with a questionnaire among the actors participating in the governance network. When analyzing the work of the governance network an analytical framework was used to identify and categorize its function and dynamics.
    The main result of this study demonstrates that the governance network working to implement the Electronic Construction Permit was constructed when efficient flow of knowledge and intercollaboration across sectors was needed. The characteristics of the management within the network is collaboration and the results were obtained through dialogue and cooperation between actors participating within the governance network.

Samþykkt: 
  • 5.9.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/19574


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaeintak MPA Bjargey Guðmundsdóttir Rafræn byggingargátt.pdf1.12 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna