is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/19582

Titill: 
  • Reynsla íslenskra feðra af heimafæðingu. „Frábær upplifun, algjörlega rétt ákvörðun fyrir okkur“
  • Titill er á ensku Icelandic fathers experience of homebirths
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Bakgrunnur: Feður vilja taka virkan þátt í barneignarferlinu og eru nánast undantekningarlaust viðstaddir fæðingu barna sinna. Þeir upplifa oft að vera utanveltu í kerfi sem er sniðið að mæðrum, þar sem upplýsingar til þeirra eru ófullnægjandi. Tíðni heimafæðinga hefur farið vaxandi án þess að reynsla feðra af þeim hafi verið mikið skoðuð. Tilgangur þessarar rannsóknar var að dýpka skilning á reynslu feðra af heimafæðingu með rannsóknarspurningunni; hver er reynsla feðra af heimafæðingu?
    Aðferð: Innihaldsgreining var notuð til þess að greina svör 65 feðra sem svöruðu opinni spurningu, í samnorrænni spurningalistakönnun, um reynslu af heimafæðingum. Að auki voru tekin djúpviðtöl við tvo feður um reynslu þeirra. Þar var notast við ferli Vancouver skólans í fyrirbærafræði við gagnasöfnun og greiningu.
    Niðurstöður: Meginþemað í gögnunum er að heimafæðing er vel ígrunduð ákvörðun verðandi foreldra sem leiðir til jákvæðrar upplifunar föður af fæðingarferlinu. Feður lýsa fæðingunni sem frábærri upplifun. Þeir lýsa persónulegum tengslum og trausti til ljósmóður og að þeir séu virkir þátttakendur í fæðingarferlinu þar sem óskir þeirra og fjölskyldunnar séu virtar. Ákvörðunin um heimafæðingu var stór þáttur reynslu þeirra, þar sem viðhorf og fordómar samfélagsins um heimafæðingar, fyrri reynsla, vilji til að vera við stjórn og öryggissjónarmið komu sterkt fram.
    Ályktanir: Frekari rannsókna er þörf á reynslu feðra af barneignarferlinu eftir fæðingarstað. Mikilvægt er að efla upplýsingagjöf og umræðu um heimafæðingar í samfélaginu og skoða hvaða þættir hafa áhrif á val á fæðingarstað.

  • Útdráttur er á ensku

    Introduction: Fathers have a desire to actively participate in the childbearing process and are almost invariably present at their babies’ births. They experience not belonging in the maternity care system and getting inadequate information. The number of homebirths has been increasing without much study of fathers’ experience. The aim of this study is to get a better understanding of fathers’ experience of homebirth. The research question; what is the experience of fathers during homebirth?
    Methods: Content analysis was used to analyze the responses of 65 Icelandic fathers who responded to an open question in a survey about experience of homebirth, in the Nordic countries. To get a deeper understanding two fathers were interviewed about their experience using the Vancouver School of doing phenomenology to gather and analyze data.
    Results: The main theme throughout the data was that homebirth is a well-considered choice of expectant parents that leads to a positive experience of the birth for the father. Fathers describe the homebirth as a great experience. They describe a personal relationship and trust to the midwife and that they are active participants in the birth process, where their own and their family ́s preferences are respected. The decision to have a homebirth was a big part of their journey where former experience, prejudices of society, desire to be in control and safety issues were important factors.
    Conclusions: More research of the experiences of birth in different birthplaces and the factors that influence decision making, is needed. It is important to provide more information and to promote discussion in society about homebirth.

Samþykkt: 
  • 8.9.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/19582


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Reynsla íslenskra feðra af heimafæðingu.pdf956.97 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna

Athugsemd: Má skoða en ekki afrita án leyfis höfundar