is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1959

Titill: 
  • Hjálpsemi : kynjamunur og áhrif sjáanlegra og ósjáanlegra meiðsla
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þegar talað er um hjálpsemi, ósérplægni eða fórnfýsi er almennt átt við að einn einstaklingur gerir eitthvað til að hjálpa öðrum einstaklingi. Oft gerir einstaklingurinn það af eigin
    hag en það kemur líka fyrir að einstaklingar hjálpi öðrum án þess að hagnast sjálfir. Í þessari rannsókn er sett fram sú tilgáta að konur séu líklegri til að aðstoða en karlar. Skiptar skoðanir eru á þessu og rannsóknum ber ekki saman hvort slíkur kynjamunur sé til staðar, hvort konur hjálpi frekar en körlum eða konum og öfugt. Í þessari rannsókn voru fengin tvö börn á fjórtánda aldursári, drengur og stúlka, til þess að gegna hlutverki spyrla. Hlutverk þeirra var að þykjast vera með sjáanleg meiðsl (meiðsl á hné) eða ósjáanleg meiðsl (illt í maganum) og
    biðja fólk um aðstoð. Með því að telja þau svör sem að konur og karlar gáfu bæði drengnum og stúlkunni, gátum við reiknað hvort einhvern mun væri að finna. Niðurstöður rannsóknarinnar gáfu til kynna að kyn spyrjenda skipti ekki máli, en konur reyndust frekar tilbúnari til að veita aðstoð.

Samþykkt: 
  • 6.10.2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1959


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BA.pdf307.05 kBOpinn"Hjálpsemi: Kynjamunur og áhrif sjáanlegra og ósjáanlegra meiðsla"-heildPDFSkoða/Opna