Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/19676
Kína er eitt stærsta land í heimi, og jafnframt hið fjölmennasta. Í svo stóru landi er þörf á öflugu samgöngukerfi. Lestarsamgöngur hafa leikið stórt hlutverk í samgöngusögu landsins og þó dregið hafi úr mikilvægi þeirra á síðustu áratugum fer enn stór hluti vöru- og farþegaflutninga í landinu fram með lestum. Lagt var upp með að kanna núverandi stöðu og aðstæður lestarkerfisins í Kína og leitast við að svara því hvort uppbygging lestarkerfisins væri á réttri leið. Rakin er saga og þróun kínverska lestarkerfisins frá 19. öld til nútímans, fjallað um hraðan vöxt lestarkerfisins á síðustu árum og greint frá metnaðarfullum áformum kínverskra stjórnvalda um frekari útvíkkun kerfisins. Einnig eru umhverfisáhrif lestarsamgangna skoðuð og borin saman við umhverfisáhrif annarra helstu samgöngumáta í Kína. Leitast er við að skýra hvers vegna stjórnvöld í Kína eru svo áhugasöm um bættar lestarsamgöngur með því að skoða hvaða ástæður gætu legið að baki.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
HallaHalls-Lokaverkefni.pdf | 356.81 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |