Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/19782
Framkvæmd var spurningakönnun meðal 101 leikskólabarns á þremur leikskólum í Reykjavík með það að markmiði að svara rannsóknarspurningunni „Velja leikskólabörn á aldrinum 4-5 ára frekar þekkt vörumerki en óþekkt og þá hvers vegna?“. Börnunum voru sýndar myndir af átta vöruflokkum, tvær myndir í hverjum flokki, og beðin um að velja hvort þau myndu kaupa þekkta vörumerkið eða það óþekkta.
Niðurstöður benda til þess að leikskólabörnin kannast með yfirburðum við vörumerkin sem eru stíluð inn á þeirra aldurshóp. Stúlkurnar í rannsókninni völdu í fleiri tilfellum þekktu vörumerkin en í þeim hluta rannsóknarinnar þar sem þekkja þurfti vörumerkin með nafni var vörumerkjavitund strákanna mun meiri.
Niðurstöður benda einnig til þess að vörumerkjavitund leikskólabarna eykst töluvert á milli þessara tveggja fæðingarára.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS ritgerð SKIL.pdf | 1.13 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |